hvað er talið með?

Velti fyrir mér: Teljast uppboðsafsöl með - Hefur skráning eigendaskipta vegna uppboða eða við nauðungarsölur áhrif á þessa talningu?
mbl.is 71 kaupsamningi þinglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef samúð með aumingja Gísla

Getur hann nokkuð gert af því hvernig hann er? Allt tal um "svokallaðan hindranaflöt" snýst í hans kolli um öryggi og uppeldi trjáa. Rökhugsun er víst ekki öllum gefin. Það er gömul saga og ný, að fólkið kýs yfir sig þá stjórnmálamenn sem það á skilið. Er ekki bara komið að því að víkja Gísla frá af öryggisástæðum?

mbl.is Fá ekki að fella tré í Öskjuhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færi ekki Nupo-létt með Hörpu

Harpan hlyti að vera hin fullkomna tenging Íslandsvinarins Nupo við land okkar og þjóð, þar sem helsta djásn Hörpu eru nýju, gegnsæu kínversku fötin hennar.
Færi ekki hann Nupo létt með að létta af okkur okinu - gegn yfirtöku skuldanna.
Höllin yrði kyrr á sínum stað - og hóparnir hans mundu fylla hana.
Mín vegna er honum velkomið að beina athyglinni frá Grímsstöðum á Fjöllum.

mbl.is Harpa botnlaus hít
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er mér -meira en- nóg boðið

Þessi fréttatilkynning er sönnun þess að enn er hlekkur í keðjunni að bresta - Taka verður af skarið og skipta út þeim embættismönnum sem telja það sjálfsagt eða jafnvel skyldu sína að þurrka út allt íslenskt almannaflug - og það í nafni "FLUGÖRYGGIS"!!!. Þeim er að takast það og þá er vissulega fullkomnu flugöryggi náð - og stofnunin þeirra óþörf.

Man enginn að við búum á eyju - langt norður í höfum - og öll eigum við að hafa lært af sögunni að sjálfstæði okkar byggist á því að við ráðum eigin samgöngum.

Almannaflug er í daglegu tali nefnt "einkaflug" en það á ekkert skylt við flottræfilshátt eða svonefndar "einkaþotur" (Business Jets). Einkaflugmenn mega engra tekna afla með flugi sínu og bera af því allan kostnað sjálfir.
Þeim kostnaði verður að stilla í hóf - en því fer víðsfjarri að þess sé gætt.

Flug áhugamanna er grasrótin sem íslenskar flugsamgöngur byggjast á. Unga fólkið sem kostar sitt flugnám er um leið að borga framhaldsnám margra atvinnuflugmanna. Í marga áratugi hefur sá háttur verið á að flugnemi greiðir laun flugkennara og tímagjald fyrir flugvél - sem telur að fullu til öflunar reynslu flugkennararans ("eldribekkingsins").
Fæstir þessara flugnema hafa orðið starfandi atvinnuflugmenn - en missa dýrkeypt réttindin ef þeim er ekki stöðugt haldið við.

Við eigum heimtingu á betri og réttlátari meðferð hins opinbera. Krafa mín er: Burtu með þá embættismenn sem ekki þekkja sinn vitjunartíma - og halda sig mesta séu þeir kaþólskari en Páfinn - Burtu með báknið.

( ÞG hóf svifflugnám 14ára og hefur 35ára flekklausan feril í vélfugi )


mbl.is ESA krafðist skýringa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfangi EN... gagnast ekki suðurströnd Íslands

Þetta er vissulega áfangi -
Nú þarf bara að brúa Þjórsána nærri ósum, til þess að Rangárvallasýsla hafi af honum gagn og þar geti skapast eðlilega tekjumyndandi ferðaþjónusta - Í Rangárþingum eru margar helstu náttúruperlur og sögustaðir landsins.

Núna hefur "suðurstrandarvegurinn" lítið með suðurströnd Íslands að gera. Vegurinn gagnast einungis fyrir flutninga milli Grindavíkur og Þorlákshafnar og sem leið fyrir erlenda túrista framhjá höfuðborgarsvæðinu og í ARNESSÝSLU (einkum Árborgarsvæði).

"suðurstrandarvegur" sem leið milli Hafnarfjarðar (eða Kópavogs) og Þorlákshafnar er um 20km LENGRI, en að fara um Þrengsli. Gamlar minningar um ófærð vegna snjóa eru úrelt rök fyrir tilurð hans.


mbl.is Búið að leggja Suðurstrandarveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vísar því alfarið á bug"...

Þetta sama svar klingir hér stöðugt í eyrum.  ..."forsætisráðherra vísar því á bug að"...   eða ...hafnar ummælum...    svona svör eru okkur gefin nánast daglega og þau látin duga til að bregðast við eða öndverðum sjónarmiðum.  Sælir eru einfaldir, var einhverntíma sagt.


mbl.is Vísa ásökunum Google á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Möller finnst sjálfsagt að íþyngja vegfarendum annarra kjördæma!

Umhyggjan fyrir íbúum og vegfarendum á suðurlandi þjakar lítið Kristján Möller f.v. samgönguráðherra.  Auðvitað er það rétt hja FIB Runólfi að framkvæmdir eigi að velja af kostgæfni og þær verði að hafa tilgang.  Draumórar og lúxusframkvæmdir eiga ekki við á þessum tímum.  Það voru ekki bara Héðinsfjarðargöng sem fækkun kjördæmanna leiddi af sér - Suðurstrandarvegur - sem einungis tengir saman Grindavík og Þorlákshöfn en nálgast ekkert suðurströndina - hvað þá tengir hana saman er enn eitt dæmið um ruglið.    Á sama tíma er Blönduósssyndrome (i.e. "allir skulu að míga hér") að þvælast fyrir ákvörðun um staðsetningu nýrrar Ölfusárbrúar og miklu víðar.  Bara til að það gleymist ekki:  Ég minni á að íbúar Vestur-Landeyja eru innikróaðir og eiga enga flóttaleið - nema aka tugi km á móti stefnu hamfaraflóðs - komi til Kötlugoss.  Þar vantar bara eina litla brú við Djúpós, vestur yfir Hólsá.
mbl.is Tal um skuggagjöld óraunhæft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi þó ekki vera forsmekkurinn að því sem koma skal...

Er þetta það sem þið viljið stefna að?  Þegar okkar fólk tekur þennan pól í hæðina, skyldi það þó ekki vera forsmekkurinn að því sem fylgir fullri aðild að Evrópusambandi -  Sæi fyrir mér málflutning á borð við:  Til hvers ætti að þurfa háskóla á eyjunni.  Allir hljóta að sjá að það er allt of dýrt - Íslenskum stúdentum dugði fyrrum að hafa aðgang að Kaupmannahafnarháskóla. 


mbl.is Íslandi nægja tveir háskólar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er tækifærið!

Nóg hefur verið á íslensku þjóðina lagt vegna ofmats þessarar ágætu konu á heilsu sinni.  Nú er tækifærið til að þakka heiðurinn og traustið sem sýnt er, en (-verða því miður að-) afþakka af heilsufarsástæðum. 


mbl.is Boðið að stýra rannsókn SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttasleginn

Hvort þessi þingmaður er virtur eða umdeildur, varðar mig ekkert um.  Hann segir einfaldlega það sem öllum má vera ljóst.  Þeir sem trúa því í alvöru að örþjóðin okkar, - sem er aðeins ígildi þorps eða smáborgar (ca Aachen )að mannfjölda, - muni bara njóta fornrar frægðar og fallins sjálfstæðis þegar inn er komið, ættu að líta sér nær.  Þeir gætu skoðað hvernig margir landar okkar hafa lagt minni samfélögin í rúst fyrir nágrönnum sínum eftir að sveitarfélög hafa verið sameinuð.  Þeir gætu horft til sjávarplássanna - stórra og smárra,  sem misstu lífsbjörgina vegna framkomu kvótabraskaranna. Þar var þó á ferðinni fólk sem talar sama tungumál og er af svipuðum uppruna og lítur eins út.  

Við munum ekkert eiga afturkvæmt ef inn er farið og evrópsku herraþjóðunum hefur verið að takast með peningum, það sem Hitler tókst ekki með stáli og sprengjum. - Ætti ekki brennt barn að hafa lært að forðast eldinn?


mbl.is Segir ESB vilja íslensk mið en ekki skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Þorkell Guðnason

Höfundur

Þorkell Guðnason
Þorkell Guðnason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Vegrið Arnarnesbrú
  • úr Almannavarnaáætlun v Kötluhlaups
  • Ef brú væri við Sandhólaferju
  • Til hamingju Vegagerðarmenn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband